Afrískt ball í Iðnó 25. júní

Afríka 20:20 stendur fyrir dúndur afrísku balli í Iðnó, föstudaginn 25.júní.

Húsið opnar klukkan 22.00 og klukkan 22:30 munu trommarar frá Gíneu stíga á stokk ásamt afródönsurum til þess að koma okkur öllum í réttan gír. Svo munum við hin hrista okkur og skekja við afríska tónlist fram á nótt.

Það ætti enginn að láta þetta fram hjá sér fara - það er fátt skemmtilegra, hollara og gleðilegra en að gleyma sér í dansi í góðum félagasskap - nú eða bara hlusta og kynna sér tónlist frá Afríku!

Vonandi komast sem flestir og endilega bjóðið vinum og vandamönnum með.

Aðgangseyrir er 1000 kr.

Afríka sunnan Sahara í brennidepli

Í tilefni HM í Suður-Afríku vill félagið minna á bókina “Afríka sunnan Sahara í brennidepli”, sem kom út árið 2007. Bókin er gefin út í þeim tilgangi að auka almennan fróðleik og skilning á álfunni, sögu hennar og samtíma, en að útgáfunni stóð Afríka 20:20 og Háskólaútgáfan. Útgáfan er tímamótaverk, því aldrei áður hefur verið skrifað jafn umfangsmikið rit um álfuna á íslensku. Sérlega hefur verið vandað til útgáfunnar, en bókin er sneisafull af litríku myndefni ásamt því sem umfjöllunarefnin eru einstaklega fjölbreytt. Tólf höfundar skrifa kafla í bókina, sem er skipt upp í fjóra hluta: Sagan, Lifnaðarhættir og lífsafkoma, Listir og bókmenntir, og Afríka og umheimurinn.

Ritstjórar eru Jónína Einarsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra í Suður-Afríku, segir í formála: „Því hefur verið haldið fram að hungur- og ofbeldismyndin af Afríku, stundum nefnd Bob Geldoff heilkennið, sé eitt helsta vandamál álfunnar. Ímyndin gerir að verkum að vestræn fyrirtæki fjárfesta ekki í álfunni, byggja ekki upp þekkingu og skila ekki arði í efnahagslífi hennar… Þessu riti er ætlað að auðvelda okkur að skilja Afríku. Það miðlar þekkingu um margbreytileika álfunnar, auðlindir hennar og vandamál, stöðu hennar á alþjóðavettvangi og þá ímynd sem hún hefur í hugum okkar.“

Bókin fæst í helsu bókabúðum um land allt.

Opnun ljósmyndasýningar Páls Stefánssonar

Afríka 20:20, í samvinnu við KSÍ og Crymogeu stendur fyrir opnun ljósmyndasýningar Páls Stefánssonar í KSÍ stúkunni í dag, 11. júní, kl 16.30.

Ljósmyndasýningin samanstendur af myndum úr ferðum Páls víða um Afríku,
þar sem hann myndaði börn og fullorðna spila fótbolta. Myndirnar eru
afskaplega fjölbreyttar og einstaklega lifandi og skemmtilegar.

En eins og flestir vita þá verður fyrsti HM leikurinn spilaður í dag og
okkur finnst gaman að þessi sýning opni um leið og augu heimsins beinast
að Suður Afríku. Útgáfa bókarinnar “Áfram Afríka” sem er bók með
ljósmyndunum verður einnig gefin út í dag og til sölu.

Afrótrommusláttur og dans mun koma okkur í afríkutaktinn!

Vonumst til að sjá sem flesta!

Málstofa um áhrif efnahagskreppunnar á Afríku

Fimmtudaginn 7. maí kl. 14-17 verður haldin málstofa undir yfirskriftinni “How the Financial Crisis Influences Africa”. Málstofan fer fram á ensku og verður haldin í Öskju (HÍ), Sturlugötu 7, 101 Reykjavík. Í fréttatilkynningu segir:

The Nordic Africa Institute, Ministry for Foreign Affairs in Iceland, the Icelandic International Develpment Agency and the Faculty of Socical and Human Sciences, University of Iceland invite you to a seminar and book launch - “How the Financial Crisis Influences Africa”.

Chair: Jónína Einarsdóttir

Speakers: Ann Pettifor, Executive Director of Advocacy International, London: “The Global Financial Crisis: causes and prospects.”

Fantu Cheru, Research Director at the Nordic Africa Institute: “Crisis, Shock Therapy, the Politics of Conditionality: Lessons from Africa’s Experience with Two Decades of IMF Conditionality.”

Stefán Ólafsson, professor at the University of Iceland: “Iceland’s Financial Crisis: Causes and Social Consequences.”

——

Book Launch of “The Bush is Sweet: Globalization, Identity and Power Among Wodaabe Fulai in Niger”, by Kristín Loftsdóttir

Chair: Carin Norberg, Director of the Nordic Africa Institute

Dr. Kristín Loftsdóttir, professor at the University of Iceland: “Risk Management at the Margins: WoDaaBe Agency, Migrant Work and Pastoral Livelihoods.

BARÁTTAN GEGN AÐSKILNAÐARSTEFNU Í S-AFRÍKU: AÐGERÐIR Á ÍSLANDI

Norræna Afríkustofnunin stendur fyrir opinni málstofu í samstarfi við Afríku 20:20 og Mannfræðistofnun Háskóla Íslands. Málstofan hefur yfirskriftina Baráttan gegn aðskilnaðarstefnu í Suður-Afríku: aðgerðir á Íslandi og verður haldin laugardaginn 21. febrúar kl. 10-12.30, í Norræna húsinu.

Norræna Afríkustofnunin í Uppsala hefur síðan 2003 unnið að því að taka saman gögn um þátttöku Norðurlandanna í frelsisbaráttu svarta meirihlutans í Suður-Afríku og afnámi aðskilnaðarstefnu (apartheid) þarlendra stjórnvalda. Afrakstur vinnunnar er skráður á heimasíðunni www.liberationafrica.se. Á Íslandi tók fólk þátt í þessari baráttu á mismunandi vettvangi. Hvaða lærdóm má draga af þeirri baráttu? Hvaða þýðingu hefur hún fyrir alþjóðlega samstöðu og hvað geta samtök sem í dag berjast fyrir afnámi misréttis og valdbeitningar lært af henni?

Dagskrá

10.00-10.10    Opnun málstofunnar

10.10-10.30    The Nordic Documentation Project on the Liberation Struggles in Southern Africa: Proscovia Svärd, verkefnisstjóri við Norrænu Afríkustofnunina

10.30-11.00    Baráttan gegn aðskilnaðarstefnu í Suður-Afríku – aðgerðir á Íslandi: Gestur Svavarson stuðningsmaður mannréttinda

11.00-11.15    Kaffi

11.15-11.30    (Ó)manneskjuleg andlit í hnattrænni og staðbundinni aðskilnaðarstefnu: Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands

11.30-11.45    Aðskilnaðarstefna – hver á sínum stað: Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í landfræði við Háskóla Íslands

11.45-12.00    Aðskilnaðarstefna í Ísrael og hernumdri Palestínu: Sveinn Rúnar Hauksson læknir, formaður félagsins Ísland-Palestína

12.00 -12.25    Umræður

12.25 -12.30     Lokaorð: Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands og formaður   félagsins Afríka 20:20

Allir velkomnir, aðgangur ókeypis

Zimbabve og Ísland – átök um yfirráð auðlinda og völd

Málstofa verður haldin á vegum félagsins í Norræna húsinu, fimmtudaginn 5. febrúar, kl. 17-18.15, um efnið:

Zimbabve og Ísland – átök um yfirráð auðlinda og völd
Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í landfræði við Háskóla Íslands og stjórnarkona í Afríka 20:20, mun beina sjónum að samanburði á baráttu íbúa Zimbabve fyrir yfirráðum ræktarlands og Íslendinga fyrir yfirráðum sjávarauðlinda. Í báðum tilvikum eru átök við breska hagsmuni og stjórnvöld í forgrunni og finna má mikinn samhljóm í röksemdafærslu beggja smáþjóðanna um samband lífskjara, sjálfbærni og auðlindayfirráða. Í ljósi þess er velt upp spurningum um tengsl einhæfrar umfjöllunar íslenskra fjölmiðla um málefni Zimbabve við staðsetningu landanna á Norður-Suður ási. Áberandi í orðræðunni um okkur (í Norðri) og hina (í Suðri) er uppstilling á andstæðunum  lýðræði, gegnsæi og virðing fyrir lögum  á móti einræði, spillingu og lögleysu. Atburðir síðustu mánaða sýna að Ísland fellur óþægilega vel að tilteknum atriðum í gagnrýnni orðræðu um stjórnmál og óstjórn í  Zimbabve, sem leitt hefur til margvíslegra refsiaðgerða alþjóðasamfélagsins.

Málstofa Mats Utas um endurhæfingu barnahermanna

Rauði krossinn og Afríka 20:20 – áhugamannafélag um Afríku sunnan Sahara standa að sameiginlegum fyrirlestri um endurhæfingu barnahermanna í Vestur-Afríku miðvikudaginn 12. nóvember kl. 17 á landskrifstofu Rauða krossins að Efstaleiti 9.

Fyrirlesari er Dr. Mats Utas mannfræðingur frá Svíþjóð. Utas er virtur í sínu fagi og hefur kennt afrísk fræði við mannfræðideildir háskólanna í Stokkhólmi, Uppsölum, Líberíu og Fourah Bay háskóla í Síerra Leóne. Helstu rannsóknarefni hans lúta að málefnum barnahermanna, flóttamanna og kvenna á átakasvæðum, og hefur hann stundað rannsóknir í Líberíu, Síerra Leóne og á Fílabeinsströndinni.

Rauði kross Íslands hefur stutt verkefni Rauða krossins í Síerra Leóne um endurhæfingu barna sem tóku þátt í borgarastyrjöldinni síðan árið 2004 með söfnunarfé sem aflað var í landssöfnuninni Göngum til góðs, ásamt öðrum framlögum frá einstaklingum og ríkisstjórn. Verkefnið stuðlar að endurhæfingu þessara barna og barnahermanna þar sem fagfólk veitir þeim sálrænan stuðning. Jafnframt fá aðstandendur barnanna fræðslu um aðstæður þeirra og um áhrif stríðsátakanna á börnin.

Afríka 20:20 – félag áhugafólks um Afríku sunnan Sahara leggur áherslu á mannréttindi og umburðarlyndi í samskitum og skoðanaskiptum og eru markmið félagsins meðal annars að vekja umræðu og athygli á málefnum tengdum Afríku og stuðla að auknum samskiptum milli Íslendinga og þjóða sem búa í þeirri heimsálfu.

Öllum er heimill aðgangur.

Efst á Baugi

Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 20. ágúst kl. 18, á Kaffi Kúltúr í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu.

Dagskrá:

1. Setning fundar og kynning dagskrár.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfstímabili.
4. Reikningar félagsins lagðir fram.
5. Starfsáætlun og fjárhagsáætlun næsta starfstímabils lagðar fram.
6. Ákvörðun félagsgjalda.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning formanns til eins árs.
9. Kosning tveggja stjórnarmanna, tveggja varamanna og eins skoðunarmanns
reikninga til tveggja ára.
10. Kosning í nefndir félagsins.
11. Önnur mál.

Til þess að hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á aðalfundinum verður viðkomandi að hafa greitt félagsgjaldið (2000 kr) inn á bankareikning 1150-26-58202 (Spron) fyrir aðalfundinn. Kennitala félagsins er 510302-5240. Vinsamlegast gætið þess að skýrt komi fram fyrir hverja félagsgjaldið er greitt!

Skrá sig á póstlista

Sendið tölvupóst á netfangið africa@africa.is

Markmið

Markmið félagsins eru, eins og segir í lögum þess:

Afríka 20:20—félag áhugafólks um Afríku sunnan Sahara leggur áherslu á mannréttindi og umburðarlyndi í samskiptum og skoðanaskiptum. Markmið félagsins eru m.a. að:

  • skapa vettvang fyrir frjóa umræðu um málefni Afríku sunnan Sahara;
  • stuðla að auknum menningarlegum samskiptum milli Íslendinga og þjóða sem búa í Afríku sunnan Sahara;
  • vekja athygli og áhuga á málefnum tengdum Afríku sunnan Sahara;
  • vera virkur þátttakandi í almennri umræðu um málefni tengdum markmiðum félagsins;
  • veita stuðning málefnum tengdum Afríku eftir efnum og aðstæðum félagsins hverju sinni;
  • hafa samskipti við sambærileg erlend samtök.

Comments are closed.